Laugardaginn 2. október var haldinn æfingadagur í Valsárskóla á Svalbarðseyri. Æfingar hófust kl. 9 um morguninn og stóðu til kl. 17:30. Að þessu sinnu fékk kórinn góðan gest, því að Margrét Bóasdóttir, sópransöngkona og margreyndur og lærður kórstjóri var Daníel til aðstoðar. Það er ekki ofsögum sagt að þetta kom mjög vel út, því Margrét fræddi kórkonur um ýmis praktísk atriði í söngnum og leiðbeindi einnig um það sem betur mátti fara. Í kaffi og matarhléum sáu kvenfélagskonur á Svalbarðsströnd um það að enginn væri svangur og voru veitingarnar hjá þeim aldeilis frábærar.
Framundan hjá kórnum er svo þátttaka í kórahátíð í Menningarhúsinu Hofi 23. október, en þar munu fjölmargir kórar koma fram allan liðlangan daginn og syngja síðan saman að lokum.
21. nóvember verða árlegir styrktartónleikar fyrir Mæðrastyrksnefnd Akureyrar haldnir í Akureyrarkirkju.
Dagskrá kórsins fyrir haustið 2010 er nú aðgengileg hér á síðunni undir liðnum Dagskrá. Greinilega margt skemmtilegt að gerast og næg verkefni til að takast á við eftir sumarfrí. Má þar nefna kórahátíð í Hofi, æfingabúðir og tvenna tónleika auk smærri viðburða. Stjórnandi kórsins er sem fyrr Daníel Þorsteinsson og formaður Snæfríð Eguilson.
Fyrsta æfing Kvennakórs Akureyrar verður þann 5. september kl. 17:00 – 19:00 í Brekkuskóla.
Frá tónleikum í Laugarborg 8. maí 2010
Vortónleikar Kvennakórs Akureyrar verða haldnir í Akureyrarkirkju 30. maí nk. kl. 15.00
Stjórnandi er Daníel Þorsteinsson og undirleikari á píanó Helga Bryndís Magnúsdóttir.
Á efnisskránni eru lög úr ýmsum áttum, svo sem íslensk þjóðlög, lög úr West Side Story og margt fleira.
Miðaverð er 1500 krónur. Frítt fyrir 12 ára og yngri. Vinsamlegast athugið að ekki er tekið á móti greiðslukortum.
Góða skemmtun.
Kvennakórinn Embla heldur tónleika í Glerárkirkju föstudaginn 28. maí kl.
20:00. Flutt verða verk fyrir kvennakór eftir ýmsa höfunda, m.a. Franz
Liszt, Zoltán Kodály, Hector Berlioz, Þorkel Sigurbjörnsson og Jón Leifs.
Með kórnum koma fram Elín Ósk Óskarsdóttir sópran, Richard Simm píanó,
Sophie M Schoonjans harpa og Helga Kvam harmonium. Kórinn flytur síðan sama
prógram í Laugarneskirkju í Reykjavík sunnudaginn 30. maí.
FUNDARBOÐ
AÐALFUNDUR KVENNAKÓRS AKUREYRAR
29. APRÍL 2010 Í BREKKUSKÓLA KL. 18:00
1. Fundur settur
2. Skipan fundarstjóra og fundarritara
3. Lestur fundargerðar síðasta aðalfundar
4. Skýrsla stjórnar og umræður
5. Ársreikingar félagsins lagðir fram til umræðu og samþykktar
6. Kosning tveggja skoðunarmanna ársreikninga og eins til vara
7. Kosning stjórnar
8. Lagabreytingar
9. Önnur mál
a. Félagsgjöld
b. 10 ára afmæli Kvennakórs Akureyrar
c. Fjáröflun, þmt. árlegur haustmarkaður
d. Drög að dagskrá næsta haust
e. Annað
10. Fundi slitið