Takk fyrir okkur Valmar

Síðustu tónleikar kórsins undir stjórn Valmars Väljaots gengu vel og Akureyrarkirkja var nánast full.
Eftir uppklapp þá þakkaði formaður kórsins Þuríður Árnadóttir, Valmari fyrir vel unnin störf.
Að því loknu söng kórinn meðfylgjandi texta eftir Önnu Dóru sem er ein af okkur í KvAk.
Sjá Þakkaróðinn hér fyrir neðan.

Takk fyrir okkur 
Auðvitað er kvennaval í kvennakór, 
sá kvennahópur reynist ekkert alltaf stór. 
En fyrir nokkru lentum við í fjandans vandræðum 
og finna þurftum stjórnanda í grænum hvellinum. 
Þá leitað var um land og haf 
og leitin sú, hún okkur gaf
Valmar nokkurn Víólín, 
hann vermdi okkar sálarskrín, 
því enginn annar eyddi’ í okkur kröftum sín.

Ýmislegt um sönginn hefur karlinn kennt, 
sú kunnátta er okkur alveg dýrðleg mennt. 
Hann telur í og trukkurinn tekur þá af stað 
og tæpast þarf að nefna eða minn’okkur á það 
að bíllinn kemur, bíllinn fer, 
á bremsu ekki stíga ber, 
því sálarlaus þá söngur er 
ef sungið er í gaupnir sér, 
og stundum kannsk’að bæra varir betra er.

Að halda á nýjar slóðir yfir fjall og frón 
ferlega er gaman fyrir heiðurshjón. 
Með Valla okkur hlotnaðir ást og undirspil 
og án hans væri kórinn kannski ekki lengur til, 
því enginn annar vild’okkur, 
en öðlingurinn skild’okkur 
og æddi bara á æfingar 
með undirbúnar ræðurnar 
um farkosti sem bruna upp allar brekkurnar.

Kórinn verður fátækari fyrir vik, 
en flótti Valmars telst þó ei við okkur svik. 
Hann leiður er á fíflum sem flandra um alla lóð 
þó ferlega sé lóðin reyndar núna orðin góð. 
Í Skagafirði skemmtun góð 
að skafa fífla úr sinni lóð 
þá Valmar ásamt Elínu 
mun eiga í heljarbrasinu 
að eiga þar við óvininn í grasinu. 

Auðvitað við óskum þess að allt sé gott 
er Akureyri kveðja þau og halda brott 
með hund og kött og fiðlu og nikku og næstum allt 
og nærbrækurnar síðu svo þeim verði ekki kalt, 
því vetrarhörkur verða þar 
þó veðrið trufli ekki par. 
Með góða skapið skunda má 
og skella sér í flúðir há 
á kajak þegar frítíma þau fá að sjá. 

Höfundur texta Anna Dóra Gunnarsdóttir

Lag: Konuvísur með Savannatríóinu

Mæðradagurinn 2026 og kóramót

10. maí mun kórinn syngja við messu í Akureyrarkirkju kl 11:00

Eftir hádegi, kl. 14:00 verða vortónleikar Kvennakórs Akureyrar. Okkar árlegu Mæðradagstónleikar. Að þeim loknum býður kórinn upp á veglegt kaffihlaðborð í safnaðarheimilinu.

Aðra helgina í júní heldur kórinn á Landsmót kvennakóra sem að þessu sinni er haldið í Suðurnesjabæ dagana 11. -13. júní.
Kórinn er í sambandi íslenskra kvennakóra og hefur tekið þátt í landsmótum sem haldin eru þriðja hvert ár allt frá árinu 2006.

Æfingarhelgi á Hótel Natura mars 2026

Kvennakór Akureyrar var með æfingarhelgi 7. til 8. mars.
Valmar kórstjóri kenndi kórnum fullt af nýjum lögum frá morgni til kvölds allan laugardaginn og stutt æfing var svo á sunnudagsmorguninn. Einnig rifjaði hann upp nokkur gömul lög. Petra Björk Pálsdóttir aðstoðaði við fræðsluna.
Hótelið sá um allan aðbúnað, mat og kaffi í öllum hléum og um kvöldið var einstaklega góður hátíðarkvöldverður. Aðbúnaður allur á hótelinu var hinn besti, stjórnun að vanda fullkomin svo ekki sé nú talað um frábæran félagsskapinn. Þessi hópur er einstakur. Konur úr öllum áttum sem hafa það sameiginlega áhugamál að syngja saman og hafa gaman.

Landsmót íslenskra kvennakóra 11.-13. júní 2026

Landsmótið verður haldið í Suðurnesjabæ í þetta skiptið og mun Kvennakór Suðurnesja hafa veg og vanda að mótinu.

Það verða fimm smiðjur í boði á þessu móti.

Þær eru:

1. „Kæru systur“. Stjórnandi: Ágota Joó

2. „Hljómar frá Keflavík“. Stjórnandi: Arnór Vilbergsson

3. „Hvað er í bíó?“ (Kvikmyndatónlist). Stjórnandi Dagný Þ. Jónsdóttir

4. „Kona“. Stjórnandi Gísli Magna

5. „Gospel gyðjur“. Stjórnandi: Rafn Hlíðkvist

Tvennir tónleikar verða á mótinu. Þeir fyrri í Hljómahöll þar sem hver Kór flytur tvö lög að eigin vali.

Seinni tónleikarnir, sem munu bera yfirskriftina Eldgyðjur, verða haldnir í Stapaskóla. Þar mun hver smiðjuhópr syngja lögin úr sinni smiðju.

Einnig munu allir þátttakendur mótsins syngja þar tvö sameiginleg lög. Annað þeirra mótslagið, og verður það frumfluttningur lagsins.

Fyrsta kóræfing vorannar verður sunnudaginn 11. janúar í Brekkuskóla kl. 19:00 til 21:00

Nýr æfingatími

Æfingar eru á sunnudögum frá kl. 19:00 til 21:00 í Brekkuskóla

Lagt var upp með það í haust að nota fimmtudagskvöld í Brekkuskóla fyrir kóræfingar. En vegna óvæntra breytinga á notkun húsnæðisins verðum við því miður að færa þær yfir á sunnudaga. Allavega fram að áramótum.