Frábært landsmót íslenskra kvennakóra 2026

Landsmót íslenskra kvennakóra sem haldið var í Suðurnesjabæ í júní síðastliðnum, tókst með eindæmum vel og skemmti KvAk sér konunglega.

Hópurinn var einstaklega heppinn með smiðju „Kærar systur“ sem var undir stjórn Ágotu Joó, við undirleik Vilbergs Viggóssonar. Svo ekki sé talað um skemmtilega kvennakórinn Senjóríturnar frá Reykjavík. Virkilega góður félagsskapur.

Þetta var 5. landsmótið sem Kvennakór Akureyrar tekur þátt í og mót númer tvö undir stjórn Valmars Väljaots. Þetta var einnig síðasti viðburðurinn sem kórinn tekur þátt í undir stjórn hans og við þökkum honum kærlega fyrir.

Hér má sjá nokkrar myndir frá mótinu en einnig er hægt að sjá myndir á síðu landsmótsins landsmot.com