Takk fyrir okkur Valmar

Síðustu tónleikar kórsins undir stjórn Valmars Väljaots gengu vel og Akureyrarkirkja var nánast full.
Eftir uppklapp þá þakkaði formaður kórsins Þuríður Árnadóttir, Valmari fyrir vel unnin störf.
Að því loknu söng kórinn meðfylgjandi texta eftir Önnu Dóru sem er ein af okkur í KvAk.
Sjá Þakkaróðinn hér fyrir neðan.

Takk fyrir okkur 
Auðvitað er kvennaval í kvennakór, 
sá kvennahópur reynist ekkert alltaf stór. 
En fyrir nokkru lentum við í fjandans vandræðum 
og finna þurftum stjórnanda í grænum hvellinum. 
Þá leitað var um land og haf 
og leitin sú, hún okkur gaf
Valmar nokkurn Víólín, 
hann vermdi okkar sálarskrín, 
því enginn annar eyddi’ í okkur kröftum sín.

Ýmislegt um sönginn hefur karlinn kennt, 
sú kunnátta er okkur alveg dýrðleg mennt. 
Hann telur í og trukkurinn tekur þá af stað 
og tæpast þarf að nefna eða minn’okkur á það 
að bíllinn kemur, bíllinn fer, 
á bremsu ekki stíga ber, 
því sálarlaus þá söngur er 
ef sungið er í gaupnir sér, 
og stundum kannsk’að bæra varir betra er.

Að halda á nýjar slóðir yfir fjall og frón 
ferlega er gaman fyrir heiðurshjón. 
Með Valla okkur hlotnaðir ást og undirspil 
og án hans væri kórinn kannski ekki lengur til, 
því enginn annar vild’okkur, 
en öðlingurinn skild’okkur 
og æddi bara á æfingar 
með undirbúnar ræðurnar 
um farkosti sem bruna upp allar brekkurnar.

Kórinn verður fátækari fyrir vik, 
en flótti Valmars telst þó ei við okkur svik. 
Hann leiður er á fíflum sem flandra um alla lóð 
þó ferlega sé lóðin reyndar núna orðin góð. 
Í Skagafirði skemmtun góð 
að skafa fífla úr sinni lóð 
þá Valmar ásamt Elínu 
mun eiga í heljarbrasinu 
að eiga þar við óvininn í grasinu. 

Auðvitað við óskum þess að allt sé gott 
er Akureyri kveðja þau og halda brott 
með hund og kött og fiðlu og nikku og næstum allt 
og nærbrækurnar síðu svo þeim verði ekki kalt, 
því vetrarhörkur verða þar 
þó veðrið trufli ekki par. 
Með góða skapið skunda má 
og skella sér í flúðir há 
á kajak þegar frítíma þau fá að sjá. 

Höfundur texta Anna Dóra Gunnarsdóttir

Lag: Konuvísur með Savannatríóinu