Kvennakór Akureyrar byrjar starfið í haust af fullum krafti með fyrstu æfingu kórsins sunnudaginn 4. september.
Daníel Þorsteinsson sem stjórnað hefur kórnum frá því á vorönn 2009 sagði starfi sínu lausu í júlí og færum við honum bestu þakkir fyrir frábært starf og góðar samverustundir.
Í stað Daníels hefur verið ráðin Sólveig Anna Aradóttir, organisti og kórstjóri. Sólveig hefur lokið BA gráðu í skapandi tónlistarmiðlun frá Listaháskóla Íslands og kirkjuorganistaprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Sólveig mun einnig stjórna kórum í Akureyrarkirkju og leysa þar af Sigrúnu Mögnu Þórsteinsdóttur.
Fyrsta æfingin verður eins og áður sagði sunnudaginn 4. sept. kl. 17:00 í Brekkuskóla. Reiknað er með að raddprufur fyrir nýja kórfélaga verði viku síðar, 11. september, en nánari auglýsing um upphaf starfsins birtist síðar.
Æfingarnar verða kl. 17:00 – 19:00 á sunnudögum í Brekkuskóla í vetur.
Brottför flugs frá Akureyri er áætluð kl.10:00 þriðjudaginn 28. júní og flogið með slóvenska flugfélaginu Adria Airways til Ljubljana í Slóveníu. Eftir u.þ.b. 4 tíma flug verður ekið beint til Vrsar í Króatíu ca. 200 km, eða rúmlega 2 klst. Gist verður í 8 nætur á Hotel Pineta.
Fyrsti dagurinn 29.júní, miðvikudagur er frjáls dagur en daginn eftir, þ.e. 30. júní verða tónleikar um kvöldið í kirkjunni St Mary of the sea í Vrsar.
1. júlí á föstudegi verður farið til Rovinj að morgni, tekin stutt skoðunarferð um bæinn og síðan frjáls tími þar til farið verður að hita upp fyrir tónleika. Tónleikar verða um kvöldið á lítilli eyju (Rauða eyjan) fyrir utan Rovinj – Þar syngjum við með Teranke og þess má geta að Klapa Teranke er einn vinsælasti sönghópurinn hjá heimafólkinu.
Klapa Terenke
2. júlí verður ekið síðdegis til Pazin og landið skoðað í leiðinni og að kvöldi verða tónleikar í tónlistarhúsinu í Pazin. Hér tekur á móti okkur blandaði kórinn Roženice – frá Pazin og blandaður kór frá Mengeš í Slóveníu. Eftir tónleika verður sameiginlegur kvöldverður og skemmtun í Pazin.
Ekið til baka til Vrsar að skemmtun lokinni.
3. júlí, sunnudag, er frjáls dagur þar sem hver og einn velur sína afþreyingu eða afslöppun.
4. júlí verður bátsferð með léttri fiskimáltíð (fish picnic). Siglt verður í suðurátt og um Rovinj eyjaklasa, en síðan haldið til Lim-fjarðar.
5. júlí er frjáls dagur
6. júlí, miðvikudag, er brottför frá hóteli um morguninn og þá ekið til Ljubljana og dvalið þar um stund. Brottför flugs JP 942 til Akureyrar kl. 17:15, áætlaður komutími heim er kl. 19:30.
Kórinn hefur í og með æft fyrir þessa ferð í allan vetur og tilhlökkun orðin gífurleg. Kórkonur eru sem taka þátt í ferðinni eru 47 en með fylgifiskum (svokölluðum puntstráum), kórstjóra og undirleikara telur hópurinn 78 manns.
Sýnishorn af æfingu kórsins 19. júní s.l. má sjá á Facebook síðu kórsins.
Kvennakór Akureyrar tekur þátt í dagskrá sjómannadagsins á Akureyri sunnudaginn 5. júní.
Kórinn syngur um kl. 14:15 í hátíðardagskrá sem fram fer fyrir utan Menningarhúsið Hof.
Að því loknu syngur kórinn aftur inni í Hofi, við veitingastaðinn 1862 Bistro.
Aðgangur er ókeypis og verið hjartanlega velkomin.
Tónleikar til heiðurs Birgi Helgasyni verða í Akureyrarkirkju fimmtudaginn 3. mars kl. 20:00.
Birgir Helgason er Akureyringum vel kunnur, enda starfaði hann áratugum saman sem tónlistarkennari við Barnaskóla Akureyrar og veitti nemendum þar ómetanlegt tækifæri til söngs og hljóðfæranáms í áraraðir. Birgir er einnig afkastamikið tónskáld og samdi mörg laganna sem sungin voru af Kór Barnaskóla Akureyrar meðan hann stjórnaði honum.
Þessir tónleikar eru haldnir til að heiðra Birgi og hans ötula starf í gegnum árin. Að tónleikunum standa Karlakór Akureyrar-Geysir, Kvennakór Akureyrar, Hymnodia og Rúnarkórinn.
Kvennakórinn vinnur nú að undirbúningi tónleika til heiðurs hinum ástkæra tónlistarkennara og afkastamikla tónskáldi Birgi Helgasyni. Á tónleikunum verða flutt lög eftir Birgi sem útsett eru fyrir karlakóra, kvennakóra, blandaða kóra og einsöngvara. Tónleikarnir eru haldnir í samstarfi við Karlakór Akureyrar-Geysi, Hymnodiu kammerkór og Rúnarkórinn og verða haldnir í Akureyrarkirkju fimmtudagskvöldið 3. mars kl. 20:00.
Til að undirbúnings fyrir tónleikana verður Kvennakórinn með æfingahelgi að Húsabakka í Svarfaðardal helgina 27.-28. febrúar. Kórinn vinnur þar einnig að undirbúningi vortónleika og væntanlegrar ferðar til Króatíu í júní.
Kórstarf hefst á nýju ári þann 3. janúar með kóræfingu á venjulegum tíma í Brekkuskóla.
Spennandi tímar eru framundan hjá kórnum eins og reyndar oft áður. Æfingahelgi verður í febrúar, tónleikar í mars, utanlandsferð í júní og eflaust eitthvað fleira sem síðar kemur í ljós.
Nánari fréttir birtast svo hér jafnóðum.
„Syngjum jólin saman inn“
er yfirskrift aðventukvölds Kirkjukórs Laugalandsprestakalls sem haldið verður þann 13. desember kl. 20:30 í Grundarkirkju.
Prestur sr. Hannes Örn Blandon, stjórnandi Daníel Þorsteinsson
Ræðumaður kvöldsins er Hrund Hlöðversdóttir
Sérstakir gestir: Kvennakór Akureyrar
Kvennakór Akureyrar heldur tvenna tónleika um næstu helgi. Tónleikarnir Dívur og drottningar sem haldnir voru s.l. vor verða endurteknir, fyrst í Hömrum í Hofi laugardaginn 31. okt. kl. 16:00 og svo í Ýdölum í Aðaldal sunnudaginn 1. nóv. kl. 15:00.
Kórinn hefur fengið til samstarfs við sig Kvenfélag Aðaldæla, en þær ágætu konur verða með kaffisölu í hléi á tónleikunum í Ýdölum. Kvenfélagskonurnar reiða fram krásir sem seldar verða fyrir 1300 krónur á mann, en allur ágóði af veitingasölu rennur í sjóð Kvenfélagsins. Kvenfélagið er reyndar ekki með posa, svo munið að taka með reiðufé.