Um Kvennakór Akureyrar
Kvennakór Akureyrar var stofnaður á vordögum 2001. Í honum starfa nú að jafnaði um 40 konur frá Akureyri og nærsveitum. Frá vorinu 2025 er formaður kórsins Þuríður Sólveig Árnadóttir og stjórnandi frá hausti 2026 er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.
Kórinn gaf út sinn fyrsta og eina geisladisk vorið 2008, hann ber nafnið „Sólardans á vori“ og er enn fáanlegur með því að hafa samband með tölvupósti í kvak@kvak.is. Kórinn heldur um það bil þrenna tónleika á ári og tekur auk þess að sér að syngja við hvers kyns tækifæri. Lagavalið er fjölbreytt, yfirleitt frekar á léttari nótunum og við allra hæfi. Æfingar kórsins eru á miðvikudögum kl. 18:00 – 20:00 og aukaæfingar eftir þörfum.
Kennitala kórsins er 451001-3020 og netföngin: kvak@kvak.is; formadur@kvak.is; gjaldkeri@kvak.is
