Nú eru komin drög að dagskrá kórsins á vorönn 2010 hér inn á heimasíðuna. Þar má sjá æfingaplan og dagsetningar á tónleikum o.fl. í starfi kórsins. Einnig eru komnar inn myndir frá tónleikunum 29. nóv. og 27. des.
Gestir heimasíðunnar fá innilegar óskir um gleðilegt ár 2010.
Kórinn á að baki farsælt og gott ár 2009 og lauk því með tvennum glæsilegum tónleikum með Karlakór Dalvíkur þann 27. desember.
Kórar og annað tónlistarfólk sem starfað hefur með Kvennakór Akureyrar árið 2009 fá hjartans þakkir fyrir ánægjulegt samstarf.
Stjórn Kvennakórs Akureyrar óskar ykkur og fjölskyldum ykkar gleðilegra
jóla og heillaríks komandi árs, með kærri þökk fyrir yndislegar
samverustundir í söng og gleði á árinu sem er að líða.
Hlökkum til að sjá ykkur á nýju söngári, með fullt af uppákomum, söng og
gleði.
Jólakveðjur
Snæfríð, Ragnhildur, Soffía, Hafey og Ásdís.
Þann 27. desember verða tvennir jólatónleikar með Kvennakór Akureyrar og Karlakór Dalvíkur. Fyrri tónleikarnir verða í Akureyrarkirkju kl 16:00, en þeir seinni í Dalvíkurkirkju kl. 21:00. Forsala aðgöngumiða er í Pennanum og við innganginn á kr. 1.500.-
Kvennakór Akureyrar á tónleikum 29. nóv. 2009
Karlakór Dalvíkur
Kvennakór Akureyrar stóð fyrir sínum árlegu tónleikum til styrktar Mæðrastyrksnefnd Akureyrar þann 29. nóvember sl. Þetta var í 7. sinn sem kórinn hélt þessa tónleika og tókust þeir afar vel. Venjan er að kórinn fái góða gesti til liðs við sig og í þetta sinn voru það Kvennakórinn Salka á Dalvík og Skólakór Hrafnagilsskóla.
Allir sem komu að tónleikunum á einhvern hátt gáfu vinnu sína,auglýsingar voru fríar og ekki þurfti að greiða fyrir aðstöðuna í Akureyrarkirkju.
Í lok tónleikanna voru Ingu Ellertsdóttur frá Mæðrastyrksnefnd Akureyrar afhentar 350.000 krónur sem var afrakstur tónleikanna.
Kvennakór Akureyrar vill þakka öllum sem komu að þessum tónleikum og ekki síst frábærum tónleikagestum.
Æfingar hafa farið vel af stað nú í haust, Daníel Þorsteinsson stjórnar þeim eins og í fyrra, en síðasta sunnudag kom Michael J. Clarke og var með raddþjálfun.
Helgina 23. – 24. okt. verður nóg um að vera því að föstudaginn 23. okt verður kökubasar á Glerártorgi kl. 15:00-18:00, eða meðan birgðir endast. Þessir kökubasarar kvennakórsins eru löngu orðnir frægir, kökurnar alveg með eindæmum góðar og renna út eins og heitar lummur.
Laugardaginn 24. okt. fer kórinn svo í æfingabúðir út í Hrísey og dvelur þar allan daginn við söng frá morgni til miðnættis eða þar um bil. Æfingadagar sem þessi eru haldnir ca 2svar á vetri og eru afar nauðsynlegir bæði til þess að ná betri árangri í söngnum og eins til þess að efla liðsandann.
Þegar nær dregur jólum verður hér sagt frá tónleikahaldi í desember, en dagsetningar á þeim má finna hér á síðunni undir Dagskrá.
Næsta sunnudag á sópran 1 og 2 að mæta kl. 16:00, en alt 1 og 2 á að mæta kl. 17:00.
Svona tilkynningar til kórfélaga munu framvegis birtast á svæði sem er einungis opið kórfélögum sem hafa skráð sig inn með notendanafni og lykilorði.
Kórfélagar! Nú er um að gera að skrá sig inn sem notanda.
Kvennakór Akureyrar er nú að byrja sitt 8. starfsár. Æft er einu sinni í viku, á sunnudögum frá kl. 17:00 – 19:00 í Brekkuskóla og verður fyrsta æfing vetrarins 13. september nk. Stjórnandi er Daníel Þorsteinsson. Nú óskum við eftir hressum söngkonum í allar raddir og hvetjum við allar nýjar kórkonur að mæta í raddprufu, sem fer fram í Brekkuskóla sunnudaginn 13. september kl. 16:00, en æfing hefst að þeim loknum. Kórstarfið verður spennandi sem endranær, og er efnisskráin fjölbreytt með lögum úr ýmsum áttum og frá ólíkum tímum.
Hlökkum til að sjá ykkur allar, gamlar sem nýjar kórkonur
Bestu söngkveðjur Kvennakór Akureyrar