Gleðilegt nýtt ár!

Kvennakór Akureyrar óskar kórfélögum, stjórnendum
fyrr og nú, undirleikurum, einsöngvurum,tónleikagestum
og öllum velunnurum gleðilegs nýs árs með kærum
þökkum fyrir liðið ár.

Fyrsta æfing kórsins á árinu 2012 er sunnudaginn 8. janúar
og dagskrá vorannar komin hér á tengilinn DAGSKRÁ

Gleðileg jól !

Kvennakór Akureyrar óskar kórfélögum, stjórnendum fyrr og nú, undirleikurum, einsöngvurum, tónleikagestum og öllum velunnurum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs með kærum þökkum fyrir árið sem brátt er á enda runnið. Hittumst heil á nýju ári !

Kórsöngur í miðbænum á laugardag

Hinn hefðbundni miðbæjarsöngur fyrir jólin verður á laugardaginn kemur.  Kvennakór Akureyrar syngur kl. 16:30 syðst í göngugötunni en annars er þetta kóramót sem hefst kl. 15:00 við GS og færist suður göngugötuna til kl. 17:00. Fjölmargir kórar og leikhópar taka þátt í þessari skemmtilegu uppákomu Miðbæjarsamtakanna á Akureyri! Og hvað er jólalegra en kór, kuldi og kakósopi? eins og segir í auglýsingu samtakanna.

Styrktartónleikar – Hjálpum þeim að hjálpa

Frá hausti 2003 hefur Kvennakór Akureyrar í samvinnu við aðra kóra og tónlistarmenn haldið aðventutónleika til styrktar Mæðrastyrksnefnd Akureyrar. Þar leggja allir sitt af mörkum og gefa vinnu sína til að styrkja gott málefni og rennur ágóðinn óskiptur til Mæðrastyrksnefndarinnar.
Í ár verða haldnir veglegir tónleikar í Hamraborginni í Hofi. Þá fær kórinn til liðs við sig góða gesti, þau

alt     alt
     Guðrúnu Gunnarsdóttur    og        Ívar Helgason.

og auk þess hljómsveit skipaða þeim Aladár Rácz á píanó, Pétri Ingólfssyni á kontrabassa og Emil Þorra Emilssyni á slagverk, stjórnandi er Daníel Þorsteinsson.

Vonast er til að sem flestir sæki þessa tónleika og leggi þar með sitt af mörkum til að hjálpa þeim sem lítið eða ekkert hafa til að halda sín jól.

Tónleikarnir eru í Hofi fimmtudaginn 8. desember kl. 20:00. Miðaverð er kr. 3000.- en frítt fyrir 14 ára og yngri. Nánari upplýsingar og miðasala eru á www.menningarhus.is

Afmælistónleikar gengu stórvel

10 ára afmælistónleikar í Hömrum í Hofi

10 ára afmælistónleikarnir s.l. laugardag gengu mjög vel og söng kórinn fyrir fullum sal í Hömrum í Menningarhúsinu Hofi.

Góður rómur var gerður að upprifjun á eldri lögum kórsins og ekki síður að nýrri lögum undir stjórn Daníels Þorsteinssonar.  Frumflutt var nýtt lag eftir hann við Árstíðirnar, texta Önnu Dóru Gunnarsdóttur, kórfélaga og var það flutt aftur í lok tónleika ásamt perlunni Tvær stjörnur eftir Megas.

Um kvöldið fögnuðu kórfélagar, stjórnendur og gestir afmælinu í Hlíðabæ, við mat, skemmtiatriði og dans fram á nótt.

Afmælistónleikarnir laugardag 19. nóv.

Það er að koma að því !

Kórinn heldur upp á 10 ára afmæli sitt með veglegum afmælistónleikum í Hömrum í Menningarhúsinu Hofi laugardaginn 19. nóv. kl. 15:00.

Þar mun kórinn stikla á stóru yfir þessi 10 viðburðarríku ár og flytja lög sem spanna sögu kórsins. Einnig mun hann frumflytja afmælislagið Árstíðirnar með texta Önnu Dóru Gunnarsdóttur kórfélaga við lag Daníels Þorsteinssonar stjórnanda kórsins. Með kórnum á tónleikunum spilar hljómsveitin Aladár Rácz á píanó, Pétur Ingólfsson á kontrabassa og Emil Þorri Emilsson á slagverk.

Miðaverð á tónleikana er 2000 og hægt að kaupa miða á www.menningarhus.is eða í afgreiðslunni í Hofi. Frítt er fyrir 14 ára og yngri.

Tvennir tónleikar fyrir jól

Það er mikið um að vera hjá kórnum þessa dagana.  Næsta sunnudag verður haldinn æfingadagur í Valsárskóla, þar sem stíf dagskrá verður frá kl. 9 að morgni og til kl 18 síðdegis. Þarna verða tekin fyrir lög sem sungin verða á tónleikum haustsins.

Fyrst er að nefna afmælistónleika sem haldnir verða í tilefni af 10 ára afmæli Kvennakórs Akureyrar!  Tónleikarnir verða haldnir laugardaginn 19. nóvember kl. 15:00 í Hömrum í Menningarhúsinu Hofi. Á tónleikunum verða tekin lög frá tímabili hvers stjórnanda, en þeir hafa verið fimm talsins. Efnisskráin verður því afar fjölbreytt og endurspeglar það sem kórinn hefur fengist við á þessum 10 árum.
Um kvöldið koma svo núverandi og fyrrverandi félagar ásamt gestum saman í Hlíðarbæ og fagna þessum tímamótum.

Fimmtudaginn 8. desember kl. 20:00 verða haldnir aðrir stórtónleikar þar sem fram fer árleg söfnun fyrir Mæðrastyrksnefnd Akureyrar. Á tónleikunum sem haldnir verða í Hamraborg í Menningarhúsinu Hofi fær kórinn til liðs við sig góða gesti, þ.e. hina góðkunnu söngkonu Guðrúnu Gunnarsdóttur og Ívar Helgason, söngvara, leikara og dansara. Þetta verður frábær skemmtun sem enginn má missa af og það besta er að allur ágóðinn af tónleikunum rennur beint til þeirra sem ekki geta haldið sín jól án stuðnings okkar hinna.

Sjáumst öll í Hofi 19. nóvember og 8. desember !

Æfingar komnar af stað og spennandi vetur framundan

Æfingar hófust af fullum krafti 4. september s.l. og nú hafa bæst við níu konur frá því í fyrra. Tvennir tónleikar verða fyrir jól, kórinn fagnar 10 ára starfsafmæli þann 19. nóvember með tónleikum og hátíð og síðan verða hinir árlegu tónleikar fyrir Mæðrastyrksnefnd Akureyrar haldnir í Hofi 8. desember.  Nánari fréttir um tónleika á vorönn koma síðar en rúsínan í pylsuendanum á þessu starfsári verður söngför til Kanada í byrjun ágúst 2012 !