Vortónleikar Kvennakórs Akureyrar hafa yfirskriftina Dívur og Drottningar og verða haldnir annan í hvítasunnu, mánudaginn 25. maí kl. 15, í Hömrum, Hofi.
Á efnisskránni verða m.a. lög sem Whithey Houston, Queen og Adele hafa gert fræg. Einsöngvarar verða Ívar Helgason og Þórhildur Örvarsdóttir.
Aladár Rácz píanóleikari og Pétur Ingólfsson bassaleikari verða meðleikarar, Daníel Þorsteinsson stjórnar.
Aðgangseyrir verður 3000 kr.
Árshátíð Kvennakórs Akureyrar var haldin 18. apríl 2015 í Viðjulundi á Akureyri.
Sópran 2 er skemmtinefnd í vetur og sá um alla skipulagningu og framkvæmd, Eins og alltaf þegar kórinn kemur saman var þetta hin besta skemmtun og mikið hlegið og sungið.
Hver rödd lagði til skemmtiatriði og auk þess fengu árshátíðargestir smá danskennslu að hætti Önnu Breiðfjörð.
Undir borðhaldi og milli atriða rúllaði svo myndasýning frá leik og starfi kórsins frá árunum 2002-2012 sem Aðalbjörg Sigmarsdóttir og Halla Gunnlaugsdóttir tóku saman.
Nokkrar myndir frá árshátíðinni má sjá hér á síðunni.
Æfingar hófust eftir jólafrí strax 4. janúar og nú æfir kórinn að krafti lög undir þemanu „Dífur og drottningar“ og ný lög bætast við á hverri æfingu.
Einnig er æfingarhelgi framundan, þ.e. helgina 28. febrúar – 1. mars að Húsabakka í Svafaðardal og má þar búast við miklum söng og gleði.
Þorrinn er nú genginn í garð og í tilefni af því syngur kórinn fyrir heimilisfólk í Hlíð ásamt Snorra Guðvarðar og Karlakór Akureyrar Geysi síðdegis föstudaginn 6. febrúar. Þetta er orðinn árlegur viðburður að kórfélagar taki þátt í þessum söng og er það til mikillar gleði fyrir flytjendur og vonandi áheyrendur líka.
Bestu jóla og nýársóskir til allra félaga, vina og velunnara Kvennakórs Akureyrar !
Kærar þakkir fyrir samstarf og stuðning á árinu sem er að líða.
Kvennakór Akureyrar heldur tónleika sunnudaginn 7. desember fyrir íbúa öldrunarheimilanna Hlíðar og Lögmannshlíðar og aðstandendur þeirra.
Kórinn syngur í Hlíð kl. 15:15 og í Lögmannshlíð kl. 17:00. Aðgangseyrir er enginn.
Kvennakór Akureyrar þakkar Karlakórnum Stefni í Mosfellsbæ fyrir aldeilis frábærar móttökur og einnig hinum kórunum, Karlakór Kópavogs og Söngbræðrum fyrir samsönginn og ánægjulega samveru um síðustu helgi á kóramótinu Söngurinn í Mosó 2014.
Laugardaginn 8. nóvember verður von á góðu, þegar Kvennakór Akureyrar tekur höndum saman með Karlakórnum Stefni, Karlakór Kópavogs og Söngbræðrum frá Borgarnesi.
Þessir glæsilegu kórar halda saman tónleika í Íþróttahúsinu að Varmá í Mosfellsbæ kl. 16:00. Hver kór mun syngja nokkur lög og svo mynda þeir saman blandaðan kór.
Karlakórinn Stefnir
Karlakór Kópavogs
Söngbræður úr Borgarnesi
Heimasíður karlakóranna:
https://www.facebook.com/karlakorinn.stefnir?fref=ts