Kórinn æfir nú af kappi fyrir tvenna tónleika.
Þann 8. maí n.k. kemur Kvennakór Suðurnesja í heimsókn og halda þá kórarnir tónleika saman í Laugarborg.
Vortónleikar verða svo haldnir 30. maí í Akureyrarkirkju. Nánar verður sagt frá báðum þessum tónleikum síðar.
Aðalfundur Kvennakórs Akureyrar verður haldinn 29. apríl n.k.
Laugardaginn 13. mars verður árshátíð kórsins haldin í Bjargi við Bugðusíðu. Árshátíðarnefnd starfar á fullu við undirbúning og hver rödd fyrir sig undirbýr skemmtiatriði. Síðan verður borðað og sungið og dansað fram eftir nóttu.
Laugardaginn 20 mars verður svo æfingadagur kórsins í Valsárskóla á Svalbarðsströnd. Þar verður æft frá 9 – 18 og einnig hlýtt á erindi frá Valdísi Jónsdóttur talmeinafræðingi sem ætlar að ræða um raddböndin, raddbeitingu og raddvernd og kenna kórfélögum aðferð til að þjálfa raddböndin og ná betri öndunartækni.
Kvennakór Suðurnesja kemur í heimsókn í maí og verða haldnir sameiginleigir tónleikar með þeim þann 8. maí. Vortónleikar kórsins verða svo 30. maí n.k. en nánar verður sagt frá þessum tónleikum síðar.
Gestir heimasíðunnar fá innilegar óskir um gleðilegt ár 2010.
Kórinn á að baki farsælt og gott ár 2009 og lauk því með tvennum glæsilegum tónleikum með Karlakór Dalvíkur þann 27. desember.
Kórar og annað tónlistarfólk sem starfað hefur með Kvennakór Akureyrar árið 2009 fá hjartans þakkir fyrir ánægjulegt samstarf.
Stjórn Kvennakórs Akureyrar óskar ykkur og fjölskyldum ykkar gleðilegra
jóla og heillaríks komandi árs, með kærri þökk fyrir yndislegar
samverustundir í söng og gleði á árinu sem er að líða.
Hlökkum til að sjá ykkur á nýju söngári, með fullt af uppákomum, söng og
gleði.
Jólakveðjur
Snæfríð, Ragnhildur, Soffía, Hafey og Ásdís.