Við gengum tvö

Lag: Friðrik Jónsson. Texti: Valdimar H. Hallstað.

Við gengum tvö,
við gengum tvö í rökkurró.
Við leiddumst hljóð,
við leiddumst hljóð um húmgan skóg.
Þú varst yndi,
þú varst yndi´ og ástin mín
og stundin áfeng,
stundin áfeng eins og vín.

Við hlýddum tvö,
við hlýddum tvö í húmi ein,
er blærinn kvað,
er blærinn kvað við blöð og grein.
Ég var nóttin,
ég var nóttin þögla þín
og þú varst eina,
þú varst eina stjarnan mín.

:,:Á meðan norðurljósin leiftra
um bláan himininn
þá sit ég ein og þrái
kveðjukossinn þinn:,: