Vetrarnótt

Lag og ljóð: Ágúst Atlason. Úts.: Björn Leifsson

Vetrarnótt, þessi bjarta vetrarnótt. Vetrarnótt, þessi kalda vetrarnótt

Í örmum vetrarnætur
litli bærinn sefur rótt.
Unga barnið grætur,
en móðir þess það huggar skjótt.

Í baksýn fjöllin há,
snæviþaktir tindar rísa.
Fögur sjón að sjá,
og norðurljósin allt upp lýsa.

Fögrum skrúða landið skrýðist
slíkri vetrarnóttu á.
Flækingsgrey eitt úti hýrist,
vosbúðin hann kvelur þá.

Er birta fer að degi,
litli bærinn vaknar skjótt.
Hvíldar nýtur eigi
lengur þessa vetrarnótt.

Vetrarnótt, þessa björtu vetrarnótt.

Fögrum skrúða…

:,:Vetrarnótt, þessa björtu vetrarnótt:,:
Vetrarnótt.