Undir Dalanna sól

Lag: Björgvin Þ. Valdimarsson. Ljóð: Hallgrímur Jónsson frá Ljárskógum

Undir Dalanna sól, við minn einfalda óð,
hef ég unað, við kyrrláta för,
undir Dalanna sól hef ég lifað mín ljóð,
ég hef leitað og fundið mín svör,
undir Dalanna sól hef ég gæfuna gist,
stundum grátið, en oftar af fögnuði kysst,
undir Dalanna sól á ég bú mitt og ból
og minn bikar, minn arin, minn svefnstað og skjól.