Til gleðinnar

Gunnsteinn Ólafsson Ólöf Jónsdóttir frá Hlöðum

Tileinkað Landssambandi íslenskra kvennakóra Búdapest, júní 2019

Hve elska ég þig, gleði, með geislana þína,
án gleð‘ er ég aumlega stödd,
þá sólbros þitt skín inn í sálina mína,
þar syngur hver einasta rödd!

Þú opnar það besta sem eðli mitt geymir
og uppljómar dimmustu göng,
svo ljósið og hitinn að hjartanu streymir
og hugurinn fyllist af söng.

Og þá vil ég öllu því lifandi líkna
og lofa því gleðina‘ að sjá.
Allt mannkyn þá vil ég af misgjörðum sýkna
og mildinni konungdóm fá.

Því elska ég þig, gleði, með andlitið bjarta,
sem áhugann kveikir og þor.
Þinn bústað sem oftast mér hafðu í hjarta,
þú huga míns syngjandi vor,
syngjandi vor, syngjandi vor, syngjandi vor,
syngjandi vor, syngjandi vor, þar syngur hver einasta rödd!