Þökk sé þessu lífi

Þökk sé þessu lífi
Lag: Violeta Parra. Ljóð þýð. Þórarinn Eldjárn

Þökk sé þessu lífi
hve það var mér örlátt
af því hlaut ég augun
opna ég þau bæði
sé og sundurgreini
svart frá hinu hvíta
og efst í hæðum
sé ég himin þakinn stjörnum
í mannhafinu
manninn sem ég elska.

— 3 erindi hér sem við syngjum ekki.

Þökk sé þessu lífi
hve það var mér örlátt
af því hlaut ég hjarta
hrærist það að rótum
er ég sé hvern ávöxt
elur hugsun mannsins
og allt sem gott er
svo víðsfjarri því vonda
er lít ég í þín
augun undurskæru.

Þökk sé þessu lífi
hve það var mér örlátt
hlaut ég af því hlátur
hlaut ég einnig tregann
til að greint ég gæti
gleðina frá harmi
þetta tvennt sem elur
alla mína söngva
og söngvar mínir eru ykkar söngvar,
og söngvar mínir eru ykkar söngvar
og söngvar allra eru sömu söngvar.