Þín innsta þrá

ÞÍN INNSTA ÞRÁ
Lag: Granata / Verard    Ljóð: Jóhanna G. Erlingsson   Radds.: BG og Margrét

Þína innstu þrá fær ekkert sefað,
í heimi óskadraums þú hefur lifað.
Sá er öðlast margt meir óskar sér.
Ást þína mamma
mun ég geyma í hjarta mér.

Góða nótt minn litli ljúfur,
mitt ljósið bjarta,
líf mitt hefur öðlast tilgang með þér.
Þú átt sömu þrána í þínu hjarta,
þrána sem um eilífð mun fylgja mér.

Ég sleit ung þau bönd er mig heima bundu,
eirt ég hvergi hef frá þeirri stundu.
Elsku mamma mín hve ég skil þig nú.
Einhvern tíma
verð ég alein eins og þú.

Góða nótt minn ….