Suður um höfin

SUÐUR UM HÖFIN
Lag: Michael Carr/Jimmy Kennedy. Ljóð: Skafti Sigþórsson. Radds.: Aðalheiður Þorsteinsdóttir.

Suður um höfin að sólgylltri strönd
sigli ég fleyi mínu til að kanna ókunn lönd.
Og meðan ég lifi, ei bresta þau bönd
sem bundið mig hafa við suðræna strönd.

Hún kom sem engill af himni til mín,
heillandi eins og þegar sólin björt í heiði skín.
Og yndisleg voru þau ævintýr mín,
og yndisleg voru hin freyðandi vín.

Þegar dagur var kominn að kveldi,
þá var kátt yfir börnum lands,
þá var veisla hjá innfæddra eldi
og allir stigu villtan dans.

Suður um höfin að sólgylltri strönd
svífur minn hugur, þegar kólna fer um heimalönd.
Og meðan ég lifi, ei bresta þau bönd
sem bundið mig hafa við suðræna strönd.