Spáðu í mig

Spáðu í mig
Lag og ljóð: Megas. Úts.: Daníel Þorsteinsson

Kvöldin eru kaldlynd útá Nesi
kafaldsbylur hylur hæð og lægð
kalinn og með koffortið á bakinu
kem ég til þín segjandi með hægð:

Spáðu í mig
þá mun ég spá í þig
spáðu í mig
þá mun ég spá í þig.

Nóttin hefur augu eins og flugan
og eflaust sér hún mig þar sem ég fer
heimulega á þinn fund að fela
flöskuna og mig í hendur þér:

Spáðu í mig …

Finnst þér ekki Esjan vera sjúkleg?
og Akrafjallið geðbilað að sjá
ef ég bið þig um að flýja með mér
til Ondúrman þá máttu ekki hvá:
Spáðu í mig …

Og kvöldin eru kaldlynd út á Nesi
kafaldsbylur hylur hæð & lægð
kalinn og með koffortið á bakinu
kem ég til þín segjandi með hægð:

Spáðu í mig …