Sagan af Jesúsi

Sagan af Jesúsi
Texti: Bragi Valdimar Skúlason. Lag: Stefan Zauner og Aron Strobel. Úts.: Atli

Það var um þetta leyti
þarna suðurfrá í miðausturlöndum.
Þar var ungt par á ferli,
konan kasólétt, þeim var vandi á höndum.
Öll mótelin voru upptekin
og yfirbókuð gistiheimilin.
Og þannig byrjaði sagan af því
þegar hann Jesús kom heiminn í.

Þau létu fyrirberast
inni í fjárhúsi með ösnum og kindum.
En það var ósköp kósí,
ekki ósvipað gömlum Biblíumyndum.
Þar kom í heiminn mannkyns von,
hinn kunni Jesús Kr. Jósepsson,
hann endaði í jötunni
beint undir Betlehemsstjörnunni.
Og þannig hljómar nú sagan af því
þegar hann Jesús kom heiminn í.

Hallelúja.
Og þannig hljómar nú sagan af því
þegar hann Jesús kom heiminn í.

Svo ráku inn nefið vitringar
sem fyrir rælni voru staddir þar.
Þeir óðu inn með gras og gull
og eitthvað óríental jurtasull.
Ó, Jósep sendi SMS,
Ó, María var bara furðu hress.
Ó, barnið lá og snuðið saug
með bros á vör og soldinn geislabaug.
Og þannig endar nú sagan af því
þegar hann Jesús kom heiminn í.

Já, þannig hljómaði sagan af því
þegar hann Sússi kom heiminn í.
Þið ráðið sjálf hvort þið trúið því.
Aaaaaaaamen.