Ó Jesúbarn

Lag: Eyþór Stefánsson. Ljóð: Jakob Jóhannesson Smári. Úts. A.Þ.

Ó Jesúbarn, þú kemur nú í nótt,
og nálægð þína ég í hjarta finn.
Þú kemur enn, þú kemur undra hljótt,
í kotin jafnt og hallir fer þú inn,

Sem ljós og hlýja´í hreysi dimmt og kalt
þitt himneskt orð burt máir skugga´og synd,
Þín heilög návist helgar mannlegt allt, –
í hverju barni sé ég þína mynd.

Þú kemur enn til þjáðra´í heimi hér
með huggun kærleiks þíns og æðsta von.
Í gluggaleysið geisla inn þú ber,
því guðdómsljóminn skín um mannsins son.