Ó, helga nótt

Ljóð: Sigurður Björnsson. Lag Adolphe Adam.

Ó, helga nótt, þín stjarna blikar blíða,
þá barnið Jesús fæddist hér á jörð.
Í dauðamyrkrum daprar þjóðir stríða
uns Drottinn birtist sinni barnahjörð.
Nú glæstar vonir gleðja hrjáðar þjóðir,
því guðlegt ljós af háum himni skín.

Föllum á kné, nú fagna himins englar,
frá barnsins jötu blessun streymir
blítt og hljótt til þín.
Ó, helga nótt, ó, heilaga nótt.

Vort trúarljós, það veginn okkur vísi.
Hjá vöggu hans við stöndum hrærð og klökk
og kyrrlát stjarna kvöldsins öllum lýsi
er koma vilja hér í bæn og þökk.
Nú konungurinn, Kristur Drottinn fæddist,
hann kallar oss í bróðurbæn til sín.

Föllum á kné, nú fagna himins englar.
Hjá lágum stalli lífsins kyndill
ljómafagur skín.
Ó, helga nótt, ó, heilaga nótt.

Föllum á kné…