Nú hverfur sól í haf

Nú hverfur sól í haf

Sigurbjörn Einarsson Þorkell Sigurbjörnssson

Nú hverfur sól í haf
og húmið kemur skjótt.
Ég lofa góðan Guð,
sem gefur dag og nótt,
minn vökudag, minn draum og nótt.

Þú vakir, faðir vor,
og vernda börnin þín,
svo víð sem veröld er
og vonarstjarna skín,
ein stjarna hljóð á himni skín.

Lát daga nú í nótt
af nýrri von og trú
í myrkri hels og harms
og hvar sem gleymist þú
á jörð, sem átt og elskar þú.

Kom, nótt, með náð og frið,
kom nær, minn faðir hár,
og legðu lyfstein þinn
við lífsins mein og sár,
allt mannsins böl, hvert brot og sár.