Nóttin var sú ágæt ein

Lag: Sigvaldi Kaldalóns. Ljóð: Einar Sigurðsson frá Heydölum

Nóttin var sú ágæt ein,
í allri veröld ljósið skein.
Það er nú heimsins þrautar mein,
að þekkja hann ei sem bæri.
:,:Með vísnasöng ég vögguna þína hræri.:,:

Í Betlehem var það barnið fætt,
sem best hefur andar sárin grætt,
svo hafa englar um það rætt
sem endurlausnarinn væri.
:,:Með vísnasöng ég vögguna þína hræri.:,:

Fjármenn hrepptu fögnuð þann,
þeir fundu bæði Guð og mann,
í lágan stall var lagður hann,
þó lausnarinn heimsins væri.
:,:Með vísnasöng ég vögguna þína hræri.:,:

Lofið og dýrð á himnum hátt,
honum með englum syngjum þrátt,
friður á jörðu og fengin sátt,
fagni því menn sem bæri.
:,:Með vísnasöng ég vögguna þína hræri.:,: