Hin fyrstu jól

Lag: Ingibjörg Þorbergs. Ljóð: Kristján frá Djúpalæk. Úts.: A.Þ.

Það dimmir og hljóðnar í Davíðsborg,
í dvala sig strætin þagga.
Í bæn hlýtur svölun brotleg sál
frá brunni himneskra dagga.
Öll jörðin er sveipuð jólasnjó
og jatan er ungbarns vagga.

Og stjarna skín gegnum skýjahjúp
með skærum lýsandi bjarma.
Og inn í fjárhúsið birtan berst,
og barnið réttir út arma.
En móðirin sælasti svanni heims,
hún sefur með bros um hvarma.

Og hjarðmaður birtist um húsið allt
ber höfga reykelsisangan.
Í huga flytur hann himni þökk,
og hjalar við reifa strangann.
Svo gerir hann krossmark krýpur fram
og kyssir barnið á vangann.