Heyr mína bæn

HEYR MÍNA BÆN
Lag: Mario Penzeri.  Texti Ólafur Gaukur Þórhallsson.
Radds.: Aðalheiður Þorsteinsdóttir.

Heyr mína bæn, mildasti blær,
berðu kveðju mína‘ yfir höf,
syngdu honum saknaðarljóð.
Vanga hans blítt vermir þú sól,
vörum mjúkum kysstu hans brá,
ástarorð, hvísla mér frá.

Syngið þið fuglar
ykkar fegursta ljóðaval,
flytjið honum í indælum óði
ástarljóð mitt.

Heyr mína bæn, bára við strönd,
blítt þú vaggar honum við barm
þar til svefninn sígur á brá.
Draumheimi í dveljum við þá
daga langa, saman tvö ein.
Heyr mínar bænir og þrár.

Syngið þið fuglar….