Ekkert svar

Lag: G. Tomco. Ljóð: Jónas Friðrik.

Langur nætur, ljósa kalda daga,
hef ég leitað, það er mannsins saga.
Fundið aðeins óma gleymdra laga
en ekkert svar, ekkert svar.

Ég hef efast, þegar einn ég reika.
Er þá lífið aðeins hismið veika?
Hlust´á vindinn í visnu sefi leika
en ekkert svar, ekkert svar.

Ég vænti svara, vildi þekkja leiðir,
vita skil á því, sem ferðir greiðir.
Þrái lífið, en ekki orð sem deyðir
en ekkert svar, ekkert svar.

Dúrí dúrí dúrí dúrí dúrí dúrí dúrí…
…. en ekkert svar, ekkert svar,
Ekkert svar, ekkert svar.