Ég vil fá mér kærustu (Värmlandsvisan)

Sænskt þjóðlag. Ljóð: Jónas Jónasson frá Hrafnagili.

Ég vil fá mér kærustu sem allra allra fyrst
en ekki verður gott að finna hana.
Hún skala hafa kinnar eins og hrútaber á kvist
og hvarmaljósin björt sem demantana.
Og hún skal vera fallegust af öllum innanlands
og iðin við að spinna og léttan stíga dans
og hún skal kunna að haga sér hið besta.

Þær eru flestar góðar ef að unnustinn er nær,
en oss þær eru vissar til að blekkja.
En ég vil fá mér eina þá sem ei við öðrum hlær,
sem elskar mig og bara mig vill þekkja.
Og hún skal líka finna bestu hugarró hjá mér,
ef húsi mínu færi hún iðni og dyggð með sér
og stóra fulla kistu bestu klæða.

Og ef ég svo í eina næ rétt alveg sem ég vil
þá óðara til brúðkaups skal ég feta.
Og sveitafólk mitt veislu fær sem vantar ekkert til
en vín og hrokafylli sína éta.
Og þar skal vera dans og drykkja daga þrjá í röð
hin dýra ást oss gjörir í hjörtunum svo glöð
en til þess verður ofurlitlu að eyða.