Ég skal mála allan heiminn

Ég skal mála allan heiminn
Erlent lag.  Ljóð: Hinrik Bjarnason

Ég skal mála yfir heiminn elsku mamma,
eintómt sólskin bjart og jafnt,
þó að dimmi að með daga kalda og skamma,
dagar þínir verða ljósir allir samt.
Litlu blómin sem þig langar til að kaupa,
skal ég lita hér á teikniblaðið mitt,
ég skal mála allan heiminn elsku mamma,
svo alltaf skíni sól í húsið þitt.

Mamma ertu sorgmædd? Seg mér hvað er að
sjálfsagt get ég málað gleði yfir það
ótal fína liti á ég fyrir þig,
ekki gráta mamma, brostu fyrir mig.

Ég skal mála yfir heiminn elsku mamma…….

Óskaðu þér mamma, alls sem þú vilt fá,
ennþá á ég liti til hvers sem verða má.
Allar heimsins stjörnur og ævintýrafjöll,
óskaðu þér mamma, svo lita ég þau öll.

Ég skal mála yfir heiminn elsku mamma,…

……..svo alltaf skíni sól í húsið þitt.
svo alltaf skíni sól í húsið þitt.