Dansaðu vindur

Dansaðu vindur
Lag: Peter og Nanne Grönvall. Texti: Kristján Hreinsson. Úts.: Þóra Marteinsdóttir

 

Kuldinn, hann kemur um jólin
með kolsvarta skugga,
krakkarnir kúra í skjóli hjá kerti í glugga.

 

Vindur, já dansaðu vindur
er vetur og kuldi gefa nýjan þrótt.
Vindur, já dansaðu vindur,
vertu á sveimi´ um kalda jólanótt.

 

Núna nístir í snjónum um nóttina svörtu,
nærast á takti og tónum titrandi hjörtu.

 

Vindur, já dansaðu vindur,
er vetur og kuldi gefa nýjan þrótt.
Vindur, já dansaðu vindur,
vertu á sveimi´ um kalda jólanótt.

 

Vindur, já dansaðu vindur,
að vetri fá börn að finna húsaskjól.
Vindur já dansaðu vindur.
Vetur er færir börnum heilög jól.

 

Úti fær vindur að valda, voldugum tónum.
Núna nötrar af kulda nóttin í snjónum.

 

Vindur já dansaðu vindur!
Að vetri fá börn að finna húsaskjól.
Vindur já dansaðu vindur!
Veturinn færir börnum heilög jól.