Boðskapur Lúkasar

Lag: J. Hairston. Ljóð: Haukur Ágústsson. Úts.: Björn Leifsson

Forðum í bænum Betlehem
var borinn sá sem er
sonur Guðs sem sorg og þraut
og syndir manna ber.

Hlustið englar himnum af
þeim herra greina frá
sem lagður var í lágan stall
en lýsir jörðu á.

Hirðum sem vöktu heiðum á
og hjarðar gætt´um nótt
englar gleði fluttu fregn
um frelsun allri drótt.

Hlustið…

Vitringum lýsti langan veg
sú leiðarstjarna hrein
Sem ljóma heimi breyskum ber
og bætir hölda mein.

Hlustið…