Selur svaf á steini 
svart’r á brún og brá, 
dindill aftan á.
Maður lá í leyni.
Höfuðið hæfa vildi.
Hokinn bak við stein 
skaut og hátt við hrein 
gæfumaðurinn gildi.
Haldið þið ekki’ ann hitti? 
Hinn fór samt á stað, 
er kúlan kom honum að
á dindilinn frá eg hún dytti.
