Hugurinn fer hærra

Erlent lag. Ljóð: Kristján Hreinsson

Ég bíð um vetrarnótt og vaki
og veit að bráðum koma jól.
Og nú er hugsun mín heit,
mín trú er hrein og ég veit
að ég öryggi finn
og að faðmurinn þinn
er mitt skjól.

Hugurinn fer hærra,
hjartað það berst í brjósti mér
þegar byrjar hátíð hér.
Hugurinn fer hærra,
höndin er styrk sem stjórnar mér.
Um himingeiminn heim með þér,
hugurinn fer.

Með þér er lífið eins og leikur,
það líf sem vekur hjá mér þrá.
Og þú ert það sem ég vil
og þú átt birtu og yl.
Meðan myrkrið er kalt
mun ég gefa þér allt
sem ég á.

Hugurinn fer hærra,
hjartað það berst í brjósti mér
þegar byrjar hátíð hér.
Hugurinn fer hærra,
höndin er styrk sem stjórnar mér.
Um himingeiminn heim með þér,
hugurinn fer.