Hey Jude / Hver Brú

John Lennon og Paul McCartney  Ísl. Texti Bragi Valdimar Skúlason.

Hver brú á langri leið
léttir spor þín, í næturmyrkri.
Hver varða, sem í þokunni sérð
þannig er gerð, af hendi styrkri.

Hvert ljós, sem lýsir för
lyftir huga og eldmóð veitir.
Hver stika sem stendur götuna við
styrk þér við hlið, hún aðstoð heitir.

Þú leggur upp í langa ferð og lengst þú berð
öll vandkvæði heims á herðum þínum.
En leiðin burt er leiðin heim svo leyfðu þeim
sem vilja þér vel, að deila sínum.

Na na na na na na na na na.

Hvert orð sem veitir von
veginn styttir og andann nærir.
Hver hugsun, sem gefur gleði og yl
gæfunnar spil að lokum þér færir.

Þú leggur upp í langa ferð og lengst þú berð
öllu vandamál heims á herðum þínum.
En leiðin burt er leiðin heim svo leyfðu þeim
sem vilja þér vel, að deila sínum.

Na na na na na na na na na.

Hver brú á langri leið
léttir spor þín að næturþeli.
Hver varða, sem þú í þokunni sérð
er þakklætis verð á norðurhveli,
hveli, hveli, hveli, hveli, hveli, Ah!

Na na na na na na na na na na na.  Hver brú

Na na na na na na na na na na na.  Hver brú

Na na na na na na na na na na na.  Hver brú

Na na na na na na na na na na na.  Hver brú

Na na na na na na na na na na na.  Hver brú