Frelsi ég finn

Ljóð:  Ragnheiður Ásta Pétursdóttir
Lag:  Cole Porter (Don’t fence me in)

Lengst inn í dal, djúpum dal, undir háum himinsal,
frelsi ég finn.
Er ég ríð mína leið yfir Hreppa, Holt og Skeið,
frelsi ég finn.
Ef ég ein fæ að dvelja í aftanblænum
og una mér við fuglasöng í lundi grænum,
þó ég aftur verði´ að fara´ að vinna´ í bænum,
frelsi ég finn.

Alfrjáls og frí ég hef það best
með hnakk og hest
og hott og hí og hvergi ský
við Heklutind klárinn minn með fjörtök stinn
og sunnanvindur kyssir kinn.

Ég ætla að ríða í austur til Eyjafjalla
því undurbjart er tunglskinið á jökulskalla,
leysist sérhver vandi´ og allir fjötrar falla,
frelsi ég finn.