Eins og nokkur undanfarin misseri þá byrjum við starf vetrarins með því að halda aðalfund. Formlegt aðalfundarboð verður sent og auglýst fljótlega.
Miðvikudaginn 16. september verður fyrsta æfingin en við byrjum á fundi og pizzaveislu og æfingin verður svo í beinu framhaldi. Fundurinn byrjar kl. 18:00 í Brekkuskóla en það er okkar nýi æfingartími.
Miðvikudagar kl. 18:00 til 20:00 í Brekkuskóla.
Sigrún Magna Þórsteinsdóttir er okkar nýi kórstjóri en hún hefur áður stjórnað kórnum.
Bjóðum Sigrúnu hjartanlega velkomna á ný.
Stjórn kórsins vinnur að undirbúningi vetrarins en kórinn á 25 ára afmæli á árinu og af því tilefni verða haldnir tónleikar í Glerárkirkju 28. nóvember kl. 16:00
Dagskrá vetrarins verður uppfærð jafnóðum þegar ákvarðanir hafa verið teknar og dagssetnningar staðfestar. En hana má sjá HÉR
