Yfir fannvíta jörð

Lag: Miller & Wells. Ljóð: Ólafur Gaukur. Úts.: A.Þ.

Yfir fannhvíta jörð leggur frið
þegar fellur mjúk logndrífa´ á grund
eins og heimurinn hinkri´ aðeins við
haldi niðri´ í sér anda um stund
Eftirvæntingu´ í augum má sjá
allt er eitthvað svo spennandi´ í dag
jafnvel kisa hún tipplar á tá
þorir tæplega´ að mala sitt lag

Svo berst ómur og samhljómur
til eyrna af indælum söng
tvíræð bros mætast
og börnin kætast
en biðin er börnunum löng.
Loksins kveikt er á kertum í bæ
þá er kátt um öll mannanna ból
og frá afskektum bæ út við sæ
ómar kveðjan um gleðileg jól.
Gleðileg jól.