Vor í Vaglaskógi

Lag: Jónas Jónasson. Ljóð: Kristján frá Djúpalæk. Úts. Björn Leifsson

Leikur í ljósum lokkum og angandi rósum.
Leikur í ljósum lokkum hinn fagnandi blær.

Kvöldið er okkar og vor um Vaglaskóg
við skulum tjalda í grænum berjamó.
Leiddu mig vinur í lundinn frá í gær,
lindin þar niðar og birkihríslan grær

Leikur í ljósum lokkum og angandi rósum.
Leikur í ljósum lokkum hinn fagnandi blær.

Daggperlur glitra um dalinn færist ró
draumar þess rætast sem gistir Vaglaskóg
Kveldrauðu skini á krækilyngið slær
kyrrðin er friðandi mild og angurvær.

Leikur í ljósum lokkum og angandi rósum
Leikur í ljósum lokkum hinn þaggandi blær.