Vísur Vatnsenda-Rósu

Íslenskt þjóðlag / Rósa Guðmundsdóttir. Úts.: Jón Ásgeirsson

Augun mín og augun þín,
ó þá fögru steina
Mitt er þitt og þitt er mitt,
þú veist hvað ég meina.

Langt er síðan sá ég hann,
sannlega fríður var hann
Allt sem prýða má einn mann,
mest af lýðum bar hann

Þig ég trega manna mest,
mædd af tára flóði
Ó, að við hefðum aldrei sést,
elsku vinurinn góði.