Vikivaki – Sunnan yfir sæinn breiða

Lag: Valgeir Guðjónsson. Ljóð: Jóhannes úr Kötlum. Úts. Daníel Þorsteinsson

 

Sunnan yfir sæinn breiða

sumarylinn vindar leiða.

Draumalandið himinheiða

hlær og opnar skautið sitt.

Vorið kemur, heimur hlýnar

hjartað mitt!

 

Gakk þú út í græna lundinn,

gáðu fram á bláu sundin.

Mundu, að þá er stutt hver stundin,

stopult jarðneskt yndi þitt

Vorið kemur, heimur hlýnar

hjartað mitt!

 

Allt hið liðna er ljúft að geyma,

láta sig í vöku dreyma.

Sólskinsdögum síst má gleyma,

segðu engum manni hitt!

Vorið kemur, heimur hlýnar

hjartað mitt!