Tvær stjörnur

Lag og ljóð: Megas. Úts. Daníel Þorsteinsson
 
Tíminn flýgur áfram og hann teymir mig á eftir sér  
en ekki fæ ég miklu ráðið um það hvert hann  fer 
en ég  vona bara að hann hugsi svolítið hlýlega til  mín    
og leiði mig á endanum aftur til  þín.   

Ég gaf þér forðum keðju úr gulli´ um hálsinn þinn,   
svo gleymdir þú mér ekki´ í dagsins amstri nokkurt sinn.   
Í augunum þínum svörtu horfði ég á sjálfan mig um hríð   
og ég vonaði´ að ég fengi bara´ að vera þar alla tíð. 

            Það er margt sem angrar en ekki´ er það þó biðin  
            því ég sé það fyrst á rykinu, hve langur tími´ er liðinn
            og ég skrifa þar eitthvað með fingrinum sem skiptir öllu máli.  
            því að nóttin mín er dimm og ein og dagurinn á báli.  

Já, og andlitið þitt málað, hve ég man það alltaf skýrt,
augnlínur og bleikar varir, brosið svo hýrt.
Jú, ég veit vel að ókeypis er allt það sem er best,
en svo þarf ég að greiða dýru verði það sem er verst.  

            Ég sakna þín í birtingu að hafa þig ekki við hlið mér, 
            og ég sakna þín á daginn þegar sólin brosir við mér, 
            Og ég sakna þín á kvöldin þegar dimman dettur á, 
            en ég sakna þín mest á nóttunni þegar svipirnir fara á stjá.  

Svo lít ég upp og sé við erum saman þarna tvær
stjörnur á blárri festingunni sem færast nær og nær.
Ég man þig þegar augu mín eru opin hverja stund
en þegar ég nú legg þau aftur hverf ég á þinn fund.