Til þín, Drottinn hnatta og heima

Lag: Þorkell Sigurbjörnsson. Texti: Páll V. G. Kolka

Til þín, Drottinn hnatta og heima,
hljómar bæn um frið.
Veittu hrjáðum, hrelldum lýðum
hjálp í nauðum, sekum grið.
Þegar skjálfa skorðuð fjöllin
skeika flest hin dýpstu ráð,
lát oss veika fá að finna
fasta bjargið þína náð.

Mara kvíðans mannkyn treður,
mætt af þungri synd.
Þjökuð veröld velkist milli
vöku og svefns með augu blind.
Lát hinn mikla lúður gjalla,
leiftur sundra þokuhjúp,
geisla þinnar sannleikssólar
sindra um myrkvuð hugardjúp.

Bjartir englar betri heima
biðjið fyrir oss.
Þú sem fyrir þjáða bræður
þyrnikrýndur barst þinn kross,
lát oss við hann fá að finna
friðarathvarf, líknarskjól.
Miskunn veit oss, mönnum sekum,
mikli guð, við dómsins stól.