Lag: Magnús Þór Sigmundsson. Ljóð: K. Rut Gunnarsdóttir Úts: Ingvar Alfreðsson
Hlustaðu, hlustaðu, hlustaðu á
hrynjanda trumbunnar, hjartslátt jarðarinnar.
Hlustaðu, hlustaðu, hlustaðu á
hrynjandi trumbunnar æðaslátt lífsins.
Hlustaðu, hlustaðu, hlustaðu og þú
verður lífsvökvinn sem rennur um þessar æðar.
Þú verður straumþungt fljót í leysingum vorsins
Þú verður hjalandi lækur sem glaðlega skoppar.
La la la la..
Skoppar stall af stalli. Niður fjallshlíðina.
Þú verður glóandi hraunstraumurinn í iðrum jarðar.
Þú verður kraumandi goshverinn á gróðurlausum heiðum.
Hlustaðu, hlustaðu, hlustaðu.
Þú, þú, þú, já þú verður jörðin
