Það sem ekki má

Lag: Jón Múli Árnason. Ljóð: Jónas Árnason. Úts. Björn Leifsson

Ef þú vinur vilt mér einni hjá,
einni hjá að vera
Það er ýmislegt sem ekki má,
ekki má þá gera:

Biðja mig og biðja mig,
biðja mig að faðma þig;
það er meðal annars það, sem ekki má.

Horfa inn í augu mín
eins og ég sé stúlkan þín;
það er meðal annars það, sem ekki má.

Vekja aftur hjá mér heita þrá,
heita þrá með brosi þínu;
það er meðal annars það, sem ekki má.

Láta hjartað alltaf örar slá,
örar slá í brjósti mínu;
það er meðal annars það, sem ekki má.

Leggja síðan kinn við kinn,
kyssa heitan vanga minn;
það er meðal annars það, sem ekki má.

Segja að þú viljir, viljir fá
viljir fá að elska mig;
það er meðal annars það, sem ekki má.

Biðja mig að svara og segja já,
segja að ég elski þig;
:,:það er meðal annars það, sem ekki má:,: