Það á að gefa börnum brauð

1) Íslenskt þjóðlag. Þjóðvísa. Úts. Skarpi

2) Þjóðvísa. Lag: Jórunn Viðar

Það á að gefa börnum brauð
að bíta í á jólunum,
kertaljós og klæðin rauð,
svo komist þau úr bólunum,.

Væna flís af feitum sauð,
sem fjalla gekk á hólunum.
Nú er hún gamla Grýla dauð,
gafst hún upp á rólunum.