Svífðu

Ljóð: Kristján Hreinsson Lag: Kirby Shaw

Þegar fegurð þína fæ ég séð
flýg af stað, svífðu með.
Ég vil lofa þetta líf með þér
Ljúfan dans, svíf með þér.

Og með allt sem hefur áður skeð.
Ég er hér, svífðu með.
Eins og fögur ský sem fljúga hjá,
förum við um loftin blá.

Þegar tónlistin tryllir vort geð
tek ég flugið og þú kemur með.
Þöndum vængjum með þér burt ég svíf
Þett‘er yndislegt líf.

Þegar sólin snertir blómabeð
bið ég þig svífðu með.
Eins og dægurflugur dönsum við.
Dönsum nú, hlið við hlið.

Svífum, kreistum,
Kyssum, tryllum,
knúsum, njótum,
dönsum nú hlið við hlið.

Þegar tónlistin tryllir vort geð,
tek ég flugið og þú kemur með.
Þöndum vængjum með þér burt ég svíf.
Þett‘er yndislegt líf.

Þegar sólin snertir blómabeð,
bið ég þig, svífðu með.
Eins og dægurflugur dönsum við,
dönsum nú, hlið við hlið.

Eins og dægurflugur dönsum við 
dönsum nú, hlið við hlið.
Svífðu með, Svífðu með,
svífðu með.