Sólargeisli kærleikans (Lífsreglur)

Lag: Björn Leifsson. Ljóð: Guðfinna Þorsteinsdóttir (Erla). Úts.: Björn Leifsson

Vertu alltaf hress í huga,
hvað sem kann að mæta þér.
Lát ei sorg né böl þig buga,
baggi margra þyngri er.

Vertu sanngjarn, vertu mildur,
vægðu þeim, sem mót þér braut.
Bið þinn Guð um hreinna hjarta,
hjálp í lífsins vanda´og þraut.

Treystu því, að þér á herðar
þyngri byrði´ei varpað er,
en þú hefur afl að bera.
Orka blundar næg í þér.

Þerrðu kinnar þess er grætu,
þvoðu kaun hins særða manns.
Sendu inn í sérhvert hjarta
sólargeisla kærleikans.