Sofðu unga ástin mín

Íslenskt þjóðlag. Ljóð: Jóhann Sigurjónsson. Úts. Jón Ásgeirsson.

Sofðu unga ástin mín,
úti regnið grætur.
Mamma geymir gullin þín,
gamla leggi´ og völuskrín.
Við skulum ekki
vaka´ um dimmar nætur.

Það er margt, sem myrkrið veit,
minn er hugur þungur.
Oft ég svartan sandinn leit
svíða grænan engireit.
Í jöklinum hljóða
dauða djúpar sprungur.

Sofðu lengi, sofðu rótt,
seint mun best að vakna.
Mæðan kenna mun þér fljótt,
meðan hallar degi skjótt,
að mennirnir elska,
missa, gráta og sakna.