Rósin

Lag: Friðrik Jónsson frá Halldórsstöðum. Ljóð: Guðmundur Halldórsson
Radds: Páll Jónsson.  Lagað fyrir kvennakór: Jakob Tryggvason.

Undir háu hamra belti
höfði drúpir lítil rós,
þráir lífsins vængjavíddir,
vorsins yl og sólarljós.

Ég held ég skynji hug þinn allan
hjartasláttinn rósin mín,
er kristallstærir daggardropar
drjúpa milt á blöðin þín.

Æsku minnar leiðir lágu
lengi vel um þennan stað.
Krjúpa niður, kyssa blómið,
hversu dýrlegt fannst mér það.

Finna hjá þér ást og unað,
yndislega rósin mín.
Eitt er það sem aldrei gleymist,
aldrei það er minning þín.