Reyndu aftur


Lag / texti: Magnús Eiríksson

Þú reyndir allt, til þess að ræða við mig
í gegnum tíðina, ég hlustaði ekki á þig.
Ég gekk áfram minn veg, niður til heljar hérumbil.
Reyndu aftur, ég bæði sé og veit og skil.

Nú hvert sem er skal ég fylgja þér,
yfir Esjuna til tunglsins trúðu mér.
Ég gekk minn breiða veg, niður til heljar hérumbil.
Reyndu aftur, ég bæði sé og veit og skil.