Óskasteinar

Ungverskt þjóðlag. Ljóð Hildigunnur Halldórsdóttir. Úts. Lajos Bárdos

Fann ég á fjalli fallega steina,
faldi þá alla, vildi þeim leyna.
Huldi þar í hellisskúta heillasteina,
alla mína unaðslegu óskasteina.

Langt er nú síðan leit ég þá steina,
lengur ei man ég óskina neina,
er þeir skyldu uppfylla um ævidaga,
ekki frá því skýrir þessi litla saga.

Gersemar mínar græt ég ei lengur,
geti þær fundið telpa eða drengur.
Silfurskæra kristalla með grænu og gráu,
gullna roðasteina rennda fjólubláu.